Feykivinsæl sýning fyrir alla fjölskylduna um gleðisprengjuna Fíusól
,,Það er nauðsynlegt fyrir mömmur og pabba að eiga börn svo þeim leiðist ekki.”
50 sýningar fyrir fullu húsi á síðasta leikári!
Herbergið hennar Fíusólar (= hræðilegi ruslahaugurinn) troðfylltist 50 sinnum í Þjóðleikhúsinu á síðasta leikári og enn biðu fjölmargir spenntir eftir því að komast þangað inn þegar leikhúsið fór í frí í vor. Fíasól og Ingólfur Gaukur vinur hennar ætla þess vegna ekkert að hætta að stelast til að bjóða skemmtilegum krökkum í heimsókn þótt mamma sé lasin og pabbi í vinnunni.
Flækjuhausinn Fíasól er átta ára drottning í sínu eigin, risastóra hugmyndaríki. En stundum fljúga hugmyndirnar svo hátt að hún missir þær út í vitleysu.
Í sýningunni kynnumst við fjölskyldu hennar, Ingólfi Gauki, bláu skrímslunum í gluggakistunni, draugunum undir rúminu og svo er eins gott að lyfta fótunum svo Sigmundur netþjónn komist að með töfraryksuguna sína!
Sýningin var tilnefnd til Grímunnar sem barnasýning ársins.
Hlustaðu á lagið "Halló Fíasól"(mp3, 6MB)
Sýningar hefjast að nýju í Kúlunni 4. september.
,,Simmi sjæn… var satt að segja drepfyndinn í fjörlegri túlkun Maríu. … Sjálf er Fíasól leikin af Láru Sveinsdóttur sem er nett og liðug og smellpassar í hlutverkið … Sviðið er alveg dásamlegt hjá Halldóri Baldurssyni og Högna Sigurþórssyni.”
Silja Aðalsteinsdóttir, Tmm.is
,,Lára smellpassar í þetta hlutverk, hún hefur einlægnina og leikgleðina sem til þarf og svo er Lára bara einhvernvegin svo full af fjöri að maður trúir því á löngum köflum að hún sé bara 8 ára. Flott vinna hjá fínni leikkonu. … „Simmi shine“ – sá sló heldur betur í gegn og var María alveg drepfyndin í því hlutverki. ... Við Agnes mælum hiklaust með Fíusól í litla sæta leikhúsinu við Lindargötuna!”
Guðmundur S. Brynjólfsson, Mbl.