"16 lovers is a group of ten honest and trustworthy artists, all children of the late lieutenant colonel Addourhoman from Abuja who was killed by poisoning."
Nígeríusvindlið er sviðslistaviðburður þar sem skoðuð er hugmyndin um réttlæti á tímum hnattvæðingar, fjölmenningar og margmiðlunar. Í Nígeríusvindlinu kanna 16 elskendur sífellt greiðara aðgengi íbúa heimsins hver að öðrum gegnum tölvutækni og stafræn rými, og beina jafnframt sjónum að því hvað sé sanngjarnt í samskiptum Vesturlandabúa, þ.m.t. Íslendinga, við Þriðja heiminn, heim sem við þekkjum yfirleitt lítið og fæst okkar hafa heimsótt. Hvað er svindl? Í hvers hlut kemur það að skilgreina hugtökin svindl, siðgæði og réttlæti? 16 elskendur vonast þannig til að varpa ljósi á mörkin á milli þeirra sem við skilgreinum sem “okkur sjálf” annars vegar, og hins vegar þeirra sem við kjósum að skilgreina sem „hina.“ Einnig er varpað fram spurningum um eðli gilda, hvort allir menn hafi sameiginleg gildi, eða geti haft þau.
Reykjavik, 20 August 2010
Dearest One, Thank you, May the peace of gracious God be with you, for choosing this very Show tonight . Permit us to inform you about this proposal. 16 lovers is a group of ten honest and trustworthy artists, all children of the late lieutenant colonel Addourhoman from Abuja who was killed by poisoning. Because we are afraid of let something not happen to us, we decided to make a seminar in our community hall theater. This would not have been possible if we had not been given money by Acting Council of our country ($ 80.500.000, -) eighty million five hundred thousand United States dollars, drama Prologos Funds and of course, noble people of the National Theatre which gave us to assist their staff and facilities. May the almighty God bless them all. Please, We will be grateful if you can tell us that will suit to you for helping us transfer money by paying (2,000 IKR) Two Thousand Icelandic Kronas only to see this Show. Also, further contribution will be helpful especially for our own good upkeep. This transaction is 100% risk free.
16 elskendur er sviðslistahópur sem samanstendur af svindlurunum Aðalbjörgu Þóru Árnadóttur, Brynju Björnsdóttur, Davíð Frey Þórunnarsyni, Evu Rún Snorradóttur, Friðgeiri Einarsssyni, Gunnari Karel Mássyni, Hlyni Páli Pálssyni, Karli Ágústi Þorbergssyni, Sögu Sigurðardóttir og Ylfu Áskelsdóttur. Hópurinn hefur áður svindlað á fólki í gegnum ferðaskrifstofuna Íkea-Ferðir árið 2008 og með marklausri skriffinnsku í Orbis Terræ Ora á Listahátíð 2009.
Sýningar í Kassanum 20. ágúst til 5. september.
Nígeríusvindlið er samstarfsverkefni 16 elskenda og Þjóðleikhússins. Sýningin hlaut styrk frá Leiklistarráði og Prologos, og er hluti af leiklistarhátíðinni Lókal.