06.02 2012

Afmælisveislan verður frumsýnd í lok apríl

Æfingar á Afmælisveislunni í leikstjórn Baltasars Kormáks hófust í október og stóðu í þrjár vikur, en þá var tekið hlé og stefnt að því að ljúka vinnslu sýningarinnar í marsmánuði. 

Leikhúsinu var þó ljóst að  brugðið gæti til beggja vona með tímasetninguna þar sem leikstjórinn var bundinn verkefni erlendis sem ekki lá fyrir hvort eða hvenær færi af stað.

Í kjölfar gífurlegrar velgengni kvikmyndar hans Contraband, sem frumsýnd var um miðjan janúar, hafa skuldbindingar ytra nú gengið hratt eftir og fleiri kvikmyndir eru þegar í farvatninu.

Í ljósi þessa og til að tryggja að áætlanir leikhússins raskist ekki um of, var ákveðið að endurmeta stöðuna og fá inn annan leikstjóra að Afmælisveislunni. Að frumkvæði Baltasars Kormáks var leitað til eins af reyndustu leikstjórum okkar, Guðjóns Pedersens, og hefur hann nú tekið að sér að leikstýra sýningunni. Hópurinn sem stendur að sýningunni verður að öðru leyti óbreyttur.  

Ingvar E. Sigurðsson fer með hlutverk Stanleys, en aðrir leikarar í sýningunni eru Björn Thors, Eggert Þorleifsson, Erlingur Gíslason, Kristbjörg Kjeld og Þórunn Arna Kristjánsdóttir.

Höfundur leikmyndar er Gretar Reynisson, búninga gerir Helga I. Stefánsdóttir og þýðandi er Bragi Ólafsson. Astoðarleikstjóri er Stefán Hallur Stefánsson.

Nokkur dráttur verður óhjákvæmilega á frumsýningunni í kjölfar þessara breytinga og vonar leikhúsið að það mæti skilningi og velvilja leikhúsgesta. Frumsýning verður í lok apríl.

Leikhúsgestir Þjóðleikhússins hafa sýnt þessu öndvegisverki Nóbelskáldsins Harolds Pinters mikinn áhuga, og eru nú þegar uppseldar átján sýningar á því.

Þjóðleikhúsið óskar Baltasar Kormáki til hamingju með verðskuldaða sigra og óskar honum velfarnaðr ytra, en vonar um leið að þess verði ekki allt of langt að bíða að hann láti til sín taka í íslensku leikhúsi á nýjan leik.

 


Fréttir



Letur breytingar


Leit