Þann 2. janúar hófust æfingar á einum vinsælasta söngleik allra tíma, Vesalingunum, í Þjóðleikhúsinu. Nýlega bættist góður liðsmaður í hóp einvala liðs leikara og söngvara í sýningunni, en það er enginn annar en Þórhallur Sigurðsson eða Laddi. Laddi mun fara með bráðskemmtilegt hlutverk Thénardiers kráareiganda, en Laddi steig síðast á svið Þjóðleikhússins fyrir 22 árum þegar hann lék Fagin foringja þjófagengisins í Oliver!
Það var unun að hlýða á söng leikaranna á fyrsta samlestri, og mega áhorfendur svo sannarlega eiga von á góðu. Ýmsir nýir kraftar munu stíga á svið í Vesalingunum, og má þar nefna Þór Breiðfjörð í aðalhlutverkinu, hlutverki Jeans Valjeans, en hann hefur starfað erlendis á undanförnum árum og meðal annars sungið þetta sama hlutverk á West End í London. Hinn ungi söngvari Eyþór Ingi Gunnlaugsson verður í hlutverki stúdentsins Maríusar, en einnig munu nú koma fram í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu þau Bjarni Snæbjörnsson, Jana María Guðmundsdóttir og Orri Huginn Ágústsson.