30.11 2011

Benedict Andrews tekur við af Luc Bondy

Ástralski leikstjórinn Benedict Andrews er íslenskum leikhúsgestum að góðu kunnur, en hann leikstýrði Lé konungi í Þjóðleikhúsinu á síðasta leikári, sem valin var besta leiksýning ársins og hlaut alls sex Grímuverðlaun. Hann var nýlega fenginn til að taka við af hinum heimsfræga leikstjóra Luc Bondy, sem þurfti að segja sig frá leikstjórn á risaverkefninu Stór og smár af heilsufarsástæðum.

 


Stór og smár eftir Botho Strauss í nýrri leikgerð Martin Crimp var frumsýnt fyrir skemmstu hjá Sydney Theatre Company, og hlaut sýningin frábærar viðtökur. Gagnrýnendum hefur verið tíðrætt um einstæða frammistöðu Kate Blanchett í aðalhlutverkinu, en þessi dáða leikkona er jafnframt leikhússtjóri STC.
Stór og smár er einn af stærri leikhúsviðburðum leikársins. Sýningin er frumsýnd í Ástralíu en hún verður einnig sýnd hjá samstarfsaðilum í Evrópu, svo sem Théâtre de la Ville í París, Wiener Festwochen, Barbican í London, Ruhrfestspiele Recklinghausen og the Cultural Olympiad 2012 Festival.

 


Benedict Andrews mun leikstýra Macbeth í Þjóðleikhúsinu á næsta leikári.
Nánari upplýsingar um sýninguna:

 


Sydney Theatre Company - Gross und Klein

STC - Bak við tjöldin - gagnrýni um sýninguna

Fréttir



Letur breytingar


Leit