Sýning Þjóðleikhússins Sindri silfurfiskur var sýnd tvisvar sinnum á Big Brake barnaleikhúshátíðinni í Moskvu í gær. Torðfullt var á báðar sýningarnar og viðtökur gesta voru frábærar. Fyrir milligöngu leikhúslistamannsins Rimasar Tuminas, sem er Íslendingum að góðu kunnur fyrir sviðsetningar sínar í Þjóðleikhúsinu, tókst einstakt samstarf um að flytja sýninguna á rússnesku. Í hlutverki sögumannsins var hin dáða leikkona Elena Sotonikova, en hún er á meðfylgjandi mynd ásamt höfundi, Áslaugu Jónsdóttur, og leikstjóra sýningarinnar, Þórhalli Sigurðssyni. Það er einstakt að geta flutt nýtt íslenskt leikrit erlendis með þessum hætti, þannig að það rati beint og milliliðalaust til áhorfenda sinna, í þessu tilfelli rússneskra barna.