21.09 2011

Aðeins þrjár sýningar eftir á gleðisöngleiknum Bjart með köflum

Aðeins þrjár sýningar eftir á gleðisöngleiknum Bjart með köflum

Bjart með köflum eftir Ólaf Hauk Símonarson var frumsýnt á síðasta leikári og hefur fengið góðar viðtökur áhorfenda, en nú eru aðeins þrjár sýningar eftir á þessum ljúfa gleðisöngleik. Allra síðasta sýning verður 30. september. Það eru því síðustu forvöð að njóta þessa fjöruga og kraftmikla verks, en sýningin víkur nú af Stóra sviðinu fyrir Listaverkinu.

 


Í Bjart með köflum ferðumst við til sjöunda áratugarins, og lendum mitt í hatrömmum átökum milli bæja, þar sem ástin ólgar, heiftin kraumar – og rokklögin hljóma af blússandi krafti! Bjart með köflum er á vissan hátt nostalgísk ferð aftur í tímann, en um leið skoðum við samfélag sem er að reyna að takast á við breyttar aðstæður og breytta tíma. En eins og alltaf er það manneskjan, vonir hennar, draumar og þrár sem er í forgrunni – og kannski er það einmitt í tónlistinni sem hægt er að tjá allar tilfinningar.

Þau Hilmir Jensson, Heiða Ólafsdóttir og Þórunn Arna Kristjánsdóttir vöktu mikla athygli í hlutverkum unga fólksins í leikritinu, dyggilega studd af reynsluboltum á borð við Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Pálma Gestsson og Örn Árnason. Fjöldi annarra leikara og tónlistarmanna tekur þátt í sýningunni. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson og tónlistarstjóri er Jón Ólafsson.


Fréttir



Letur breytingar


Leit