Sýningar á Bjart með köflum eftir Ólaf Hauk Símonarson hefjast að nýju á Stóra sviði Þjóðleikhússins nú um helgina, á föstudags- og laugardagskvöld. Söngleikurinn naut mikillar hylli meðal áhorfenda í vor, og nú gefst aftur færi á að njóta þessa fjöruga og kraftmikla verks.
Í Bjart með köflum ferðumst við til sjöunda áratugarins, og lendum mitt í hatrömmum átökum milli sveitabæja, þar sem ástin ólgar, heiftin kraumar – og rokklögin hljóma af blússandi krafti! Bjart með köflum er á vissan hátt nostalgísk ferð aftur í tímann, en um leið skoðum við samfélag sem er að reyna að takast á við breyttar aðstæður og breytta tíma. En eins og alltaf er það manneskjan, vonir hennar, draumar og þrár sem er í forgrunni – og kannski er það einmitt í tónlistinni sem hægt er að tjá allar tilfinningar.
Þau Hilmir Jensson, Heiða Ólafsdóttir og Þórunn Arna Kristjánsdóttir vöktu mikla athygli í hlutverkum unga fólksins í leikritinu, dyggilega studd af reynsluboltum á borð við Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Pálma Gestsson og Örn Árnason. Fjöldi annarra leikara og tónlistarmanna tekur þátt í sýningunni. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson og tónlistarstjóri er Jón Ólafsson.