Nú líður að lokum þessa leikárs en ennþá gefast nokkur tækifæri á að sjá gleðileikinn Bjart með köflum og hina mögnuðu sýningu á Allir synir mínir.
Fjórar sýningar eru eftir af Bjart með köflum eftir Ólaf Hauk Símonarson, sem sýnt hefur verið á Stóra sviðinu frá því í byrjun apríl. Tvær sýningar verða núna um helgina, 3. og 4. júní og síðustu sýninga fyrir sumarfrí á Bjart með köflum verða 9. og 10. júní. Bjart með köflum mun snúa aftur á fjalirnar í haust.
Leikritið Allir synir mínir eftir Arthur Miller hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og áhorfenda. Tvær aukasýningar verða á Öllum sonum mínum nú í júní, sú fyrri þann 5. júní og sú síðari, sem jafnframt er síðasta sýning leikársins verður þann 11. júní.