27.05 2011

Fyrsta sýningin af þremur á Gerplu í Bergen var í gærkvöld og fékk frábærar viðtökur gesta

Fyrsta sýningin af þremur á Gerplu í Bergen var í gærkvöld og fékk frábærar viðtökur gesta.

Nils Olav Sæverås skrifar gagnrýni um sýninguna í Bergenavisen http://www.ba.no/

Hann fer fögrum orðum um leikstjórann, en hann segir meðhöndlun hans á efniviðnum djarfa og spennandi, enda láti honum jafnvel að sjá húmorinn í hetjum fornsagnanna og hvunndagshetjum dagsins í dag, eins og hann sýndi svo eftirminnilega í fyrstu kvikmynd sinni 101 Reykjavík, þar sem partý-glaðir Íslendingar voru viðfangsefnið. Hann hafi komið með sprengikrafti inn í kvikmyndagerðina og nú sýnir hann okkur hvers hann er megnugur sem leikhúsleikstjóri. Olav segir hann ausa af gnægtarbrunni þegar kemur að sviðslausnum og leikhúsgaldir, en honum takist jafnvel að sviðsetja hvalskurð á sviðsgólfinu með mikilli hugmyndaauðgi. Olav fer einnig fögum orðum um leikhópinn sem hann segir búa til margslungið persónugallerí og sýna frábæra takta:  
 
"Regissör Baltasar Kormákur bruker er vell af scenisk vikrmidler, han klarer til og med å illuedre hvalfangst på scengulvet, med stor oppfinsomhed. Skuespillerne utgjör et mangslunget typegalleri, de får boltre seg i en svær fysisk form for skuespill."

Loks lofar hann aðferðafræðina:

"So langt virker det som om til dels radical bearbejding av gammelt stoff er med på å prege årets festspil. For sagalitteratur fremstår radikal bearbeiding som eneste farbare vej."  

Fréttir



Letur breytingar


Leit