Leikritið Allir synir mínir eftir Arthur Miller hefur hlotið frábærar viðtökur áhorfenda og mikið lof gagnrýnenda, enda er um glæsilega sýningu að ræða. Síðasta sýning var áætluð í kvöld, 18. maí og uppselt er á sýninguna. Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að sýna tvær aukasýningar þann 5. og 11. júní.
Ekki missa af þessu einstaka listaverki í Þjóðleikhúsinu.