Á næsta leikári gengur Hilmir Snær Guðnason aftur til liðs við leikhóp Þjóðleikhússins eftir nokkurt hlé. Ásamt honum bætast nú í hóp fastráðinna leikara fimm afburða leikarar sem allir hafa sett sterkan svip á starf Þjóðleikhússins og íslenskt leikhúslíf á undanförnum árum, þau Björn Thors, Margrét Vilhjálmsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Arnbjörg Hlíf Valsdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson.
Sterkur og fjölhæfur hópur listamanna er styrkur hvers leikhúss og á næstunni verður einnig gengið frá tímabundnum samningum við leikara, árssamningum og verkefnaráðningum vegna tiltekinna sýninga á næsta leikári.
Næsta haust munu þrír af eftirsóttustu leikhúslistamönnum okkar, þeir Hilmir Snær Guðnason, Ingvar E. Sigurðsson og Baltasar Kormákur, sameina krafta sína að nýju í Listaverkinu eftir Yasminu Reza í leikstjórn Guðjóns Pedersen. Mörgum leikhúsunnendum er í fersku minni geysivinsæl sýning þeirra félaga á verkinu árið 1997. Það verður spennandi að sjá þessa fjölhæfu leikhúslistamenn takast á við hlutverk sín að nýju, fjórtán árum síðar.
Í öðrum verkefnum haustsins munu tvær af okkar virtustu leikkonum af eldri kynslóðinni vera í burðarhlutverkum, þær Kristbjörg Kjeld og Margrét Helga Jóhannsdóttir. Kristbjörg hefur í gegnum árin verið einn af máttarstólpunum í leikarahópi Þjóðleikhússins en Margrét Helga ljær nú Þjóðleikhúsinu krafta sína eftir langan og farsælan feril hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Margrét Helga Jóhannsdóttir fer með aðalhlutverk í hinu magnaða verki Hreinsun eftir Sofi Oksanen í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Höfundurinn hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir skáldsögu byggða á leikritinu, og bókin var meðal söluhæstu bóka hér á landi á liðnu ári.
Kristbjörg Kjeld fer með aðalhlutverk í leikritinu Svartur hundur prestsins eftir Auði Övu Ólafsdóttur í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Auður sendir nú frá sér sitt fyrsta leikrit en skáldsögur hennar hafa vakið mikla eftirtekt á undanförnum árum og unnið til verðlauna jafnt á Íslandi sem í Frakklandi.
Leikarahópur Þjóðleikhússins tekur alltaf einhverjum breytingum á hverju leikári, og nokkrir leikarar hverfa nú úr hópi fastráðinna leikara hússins, að minnsta kosti um sinn, í stað þeirra sem koma inn.