Söngleikurinn Bjart með köflum eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar verður frumsýndur í kvöld. Sýningin hefur fengið frábærar viðtökur á tveimur opnum æfingum sem hafa verið í vikunni.
Nýr gleðigjafi frá Ólafi Hauki!
Ólafur Haukur hefur skrifað mörg geysivinsæl leikrit sem sýnd hafa verið í Þjóðleikhúsinu á síðustu áratugum undir stjórn Þórhalls Sigurðssonar. Þeir félagar færa okkur nú glænýtt og kraftmikið leikrit með sívinsælli tónlist frá ofanverðum sjöunda áratugnum. Nokkrir ungir leikarar eru í aðalhlutverkum, en eru dyggilega studdir af máttarstólpum úr leikarahópi Þjóðleikhússins. Bráðfyndið verk með dúndurskemmtilegri tónlist!
Minningar úr sveit
Í tengslum við sýningu Þjóðleikhússins á Bjart með köflum eftir Ólaf Hauk Símonarson óskar leikhúsið eftir stuttum textum frá almenningi sem innihalda minningar um sveitadvöl, gjarnan frá 7. áratugnum, en einnig frá öðrum tímum.
Minningarbrotin má senda á netfangið dora@leikhusid.is, og verða þau síðan sett inn á heimasíðuna undir Bjart með köflum.
Höfundar nokkurra texta verða verðlaunaðir með boðsmiðum í Þjóðleikhúsið.