Vegna mikillar eftirspurnar á uppistandskvöld Mið-Íslands hefur verið bætt við aukasýningu fimmtudaginn 7. apríl. Um er að ræða nýja sýningu með nýju efni og nýjum gesti og er það enginn annar en hinn eini sanni Pétur Jóhann Sigfússon!
Húsfyllir hefur verið á öllum kvöldum Mið-Íslands til þessa, nú seinast í mars. Fastir meðlimir hópsins eru þeir Ari Eldjárn, Bergur Ebbi Benediktsson, Halldór Halldórsson og Jóhann Alfreð Kristinsson og munu þeir allir koma fram. Það er svo hópnum mikill fengur að fá jafn leikreyndan mann á line-up kvöldsins og Pétur Jóhann, en hann hefur verið einn vinsælasti uppistandari Íslands í rúman áratug. Þá mun Margrét Björnsdóttir, sem á dögunum vann keppnina Fyndnasti Verzlingurinn vera með stórskemmtilega innkomu á sýningunni.
Meðal fyrri gesta á uppistandskvöldum Mið-Íslands eru Þorsteinn Guðmundsson, Þórhallur Þórhallsson, Saga Garðarsdóttir, Hugleikur Dagsson og Sólmundur Hólm.
Sem fyrr mun hinn ógleymanlegi Björn Bragi Arnarsson halda utan um kvöldið en hann fer iðulega á kostum sem kynnir.
Sýning Mið-Íslands er smám saman að verða fastur punktur í skemmtanalífi Íslendinga og fer fram í hinum sögufræga Þjóðleikhúskjallara sem hýst hefur ótal uppákomur í íslenskri grínsögu.
Skemmtunin hefst stundvíslega klukkan 20:30. Sýningin er tveir klukkutímar með einu hléi.
Miðaverð er 2000 krónur.
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika