Beint í leiðarkerfi vefsins.
Nú fer hver að verða síðastur að sjá leikritið Svartur hundur prestsins eftir Auði Övu Ólafsdóttur, en tvær aukasýningar verða á verkinu nú um helgina.
Þjóðleikhúsið óskar þeim Baltasar Kormáki, Ingvari E. Sigurðssyni og Ólafi Darra Ólafssyni til hamingju með gott gengi á erlendri grundu undanfarið.
Hreinsun eftir Sofi Oksanen var frumsýnd á Stóra sviðinu þann 27.október 2011 og hefur vakið verðskuldaða athygli. Á föstudaginn, þann 20. janúar, verður aukasýning á verkinu sem nú þarf að víkja fyrir nýjum sýningum.